4.2.2008 | 04:16
Laos kemur a ovart
Eg er buin ad hafa thad alveg hrikalega naes herna i Luang Prabang undanfarna daga. Thetta er otrulegur stadur, eiginlega himnariki nautnaseggsins, hatid fyrir oll skilningarvitin. Kom mer a ovart hversu modern their eru herna, fagadir og miklir fagurkerar. Eg er buin ad eiga i miklum erfidleikum thvi allt i kring eru til solu mjog flottir hlutir hraeodyrir en eg er thvi midur med takmarkad plass til ad geyma allt sem eg vildi kaupa herna svo eg er ad reyna ad gera upp vid mig hvad a ad velja. Svo er her allt fullt af veitingastodum og kaffihusum sem bjoda upp a mjog godan mat, allt hraefnid svo ferskt og bragdmikid en thvi midur er magakveisan enn ad hrja mig svo eg verd ad fara varlega i freistingarnar. Og ekki nog med thetta thvi tha er thessi stadur talinn sa besti i sudaustur Asiu til ad lata dekra vid sig i nuddi og sliku. Jamm thetta er algjor nautnastadur og svo otrulega fallegur og sjarmerandi ad madur gleymir ser alveg vid ad rolta um baeinn i rjomablidu. Kannski ekkert skrytid ad NYT hafi valid Laos sem adal stadinn til ad ferdast til 2008..........
Vid erum nu loks buinar ad hekla saman sidari hluta ferdarinnar. A morgun fljugum vid hedan fra Laos til Bangkok og verdum thar fram a fostudag. Thadan munum vid svo fara a eyju sem heitir Ko Chang og njota strandar og sjos eda thangad til vid fljugum til HongKong sem verdur 14. februar og svo fljugum vid heim til Peking 17. februar.
Athugasemdir
þetta hljómar ekki slæmt! Að meira áríðandi hlutum..... ég þarf að ná tali af þér kona....mikið að gerast og vont að geta ekki rætt það við tvístígandi síamstvíburann! viltu plís koma þér í samband sem fyrst!
mooney (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 10:55
hmmm, skrifadu mail, eg er ekki i simasambandi virdist vera herna i laos en eg verd komin til bangkok a morgun. kv. Kolla
Kolbrun Olafsdottir (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 12:06
one email coming up...ertu vakandi eitthvað áfram? kemstu á msn?
mooney (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 12:09
Ertu til í að skipta í nokkra daga, nenni ekki að moka bílinn upp úr snjónum.
Þorsteinn Valur Baldvinsson, 4.2.2008 kl. 16:03
Ohh... öfund, öfund :) Væri sko alveg til í að vera þarna með þér!
Fékk skilaboðin frá þér, ég renni við hjá þeim í vikunni!
Jóhanna (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 21:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.