28.10.2007 | 17:15
Fallegt veður
Mengunin sem hékk hér yfir borginni í fyrradag var hreinsuð í burtu með stæl í gærkvöldi. Það komu þvílíkar þrumur og eldingar og auðvitað fylgdi grenjandi rigning eins og vera ber. Eiginlega elska ég þrumur og eldingar þar að segja þegar ég er innan húss. Mér finnst krafturinn sem náttúran sýnir með þessum hætti alveg mögnuð. Afleiðingar veðursins komu svo fram í morgun mjög bjart og fallegt veður svo að útsýnið var alveg sérstaklega gott. Ég tók mynd af útsýninu úr herbergisglugganum í dag og eins og sjá má er ekki langt í náttúruna.
Athugasemdir
Jájá býrðu kannski bara uppi í himnaríki?
Ekki skrýtið þótt þér finnist Kínverjarnir litlir!
Kv. Margrét
Margrét (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 23:35
Hehehe ég amk er nær himnaríki hér á 16. hæð heldur en ég var á 4. hæð á Skólavörðustígnum. Spurning hvort þetta sé þróun í rétta átt.....
Kolbrún Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 03:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.