Færsluflokkur: Bloggar
2.2.2008 | 11:43
Luang Brabang, Laos
Tha er eg komin til Laos og list alveg ljomandi vel a mig herna i Luang Brabang, komin ur rumlega 30 stiga hita i rumlega 20 stiga hita. Sidustu dagar hafa ekki alveg verid their bestu a ferdalaginu thvi eg nadi mer i ekki svo huggulega magapest a fimmtudaginn. Sa dagur var thvi alveg onytur en hann aetludum vid ad nyta til ad skoda Ankor hofin. A fostudagsmorguninn drattadist eg af stad og skodadi nokkur hof sem eru kollud Ankor Thom en um hadegi vard eg ad jata mig sigrada eftir ad hafa verid ad klifra um thessar merku minjar i thvilikum hita ad maginn tholdi ekki meira og eg vard ad halda heim a leid. Thetta eru storfenglegar minjar og alveg glotud timasetning hja mer en kannski thydir thetta bara ad eg verd ad koma til baka, amk vona eg thad thvi ad mer fannst Kambodia mjog svo heillandi land.
Eg vard fyrir frekar fyndinni upplifun i Siam Reap en eg akvad ad lata snyrta a mer neglurnar og spurdi a gistheimilinu hvar haegt vaeri ad komast i slikt. Gaurinn i afgreidslunni benti bara hinum megin vid gotuna og eg akvad ad fara og leggja mitt af morkum vid ad baeta fjarhaginn i gotunni. Eg kiki yfir og fae i hendurnar verdlista og thar a medal hvad hand- og fotsnyrting kostar og bendi stulkunni sem var tharna a thad. Ju ju hun jankadi thvi og leiddi mig inn i herbergi sem var langt og mjott og radad var dynum a golfid. Hun thvaer mer snogglega um faeturna og bendir mer ad leggjast a eina dynuna, ok hugsa eg svolitid spes en hvad serhver er sidurinn i hverju landi. Stulkan fer fram og kemur med eh klut og aetlar ad fara ad thrifa a mer andlitid, svo eg endurtok ad eg vildi bara fa hand- og fotsnyrtingu og tha for hun aftur fram. Jaeja tha kemur eldri kona inn og med henni eh madur og segja thau mer ad eg thurfi ad bida i 2 minutur thvi su sem sjai um hand- og fotsnyrtingu se ekki a stadnum og hun se a leidinni. Ja ok segi eg og svo beid eg og beid. Thegar mer var alveg nog bodid ad bida sem var ordid mun lengra en 2 minutur stod eg upp og aetladi fram en nei nei eg var bara LAEST inn takk fyrir. Ekki nog med thad heldur var brudkaupid fina enn i fullum gangi med thvilku tonlistar blasti svo enginn heyrdi i mer. Mer fannst thetta frekar fyndid moment en samt leid mer ekkert serstaklega vel ad vera laest inni i eh husi i Kambodiu. Nu ad lokum kom lidid aftur og var tha naglasnyrtirinn maettur og vildi hun ad eg kaemi eh annad med ser aftan a vespuna hennar. Thad fannst mer nu heldur langt gengid og thakkadi bara pent fyrir og endadi a ad finna eh oskaplega naes spa thar sem eg let dekra vid mig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.1.2008 | 09:07
A spjalli vid munk
Uff dagurinn i gaer var erfidur. Vid byrjudum skodunarturinn a svolitid spes stad og matsedlarnir voru langt fra thvi ad vera normal thvi a theim var eingongu bodid upp a skotvopn og skot. Jamm thu gast valdid ur vaegast sagt miklu urvali, bara spurning hvad thu vildir borga mikid. Eg reyndar sleppti thvi ad prufa en thad var einn strakur sem fekk utras vid ad skjota ur hridskotabyssu. Eftir the Shooting range forum vid ad the Killing fields. Thad var merkilegt ad koma tharna, a svona fridsaelan og fallegan stad sem byr yfir svo hryllilegri sogu. Thad sem blasir vid manni vid innganginn er hatt minnismerki um alla tha sem letu lifid tharna, minnismerkid er ha sula upp i loftid sem er margar glerhillur sem a er radad hauskupum theirra sem fundust i fjoldagrofunum tharna eftir raudu kahmerana, alls um 8.000 hauskupur karla, kvenna og barna. Ad thessari heimsokn lokinni forum vid svo beint i fangelsid Toul Sleng thar sem vid heldum afram ad skoda hryllingsverkin. Raudu Kahmerarnir voru mjog skipulagdir i storfum sinum i fangelsinu og toku myndir af ollum sem thangad voru settir. I dag getur madur skodad thessar myndir og horft i augun a olllu thessu folki sem var pyntad og svo drepid a thessum stad sem er fyrrverandi skoli. Hrikalega erfid lifsreynsla en eg held ad thad se ollum hollt ad horfast i augun vid thennan hrylling sem vid mannfolkid virdumst vera dugleg vid ad skapa okkur sjalf oftast i nafni valda og paranoju.
Naesta stopp var i thjodminjasafninu, thar var ad finna ymsar minjar medal annars fullt af buddastyttum. Eg settist i gard sem var eins og madur imyndar ser i aevintyrunum, otrulega fallegur og framandi. Eg for ad spjalla vid buddamunk tharna i gardinum og hann sagdi mer undan og ofan af lifi sinu. Hann er faeddur 1978 thegar raudu kahmerarnir voru vid vold. Hann olst upp i sveit og thar sem stjornvoldin hofdu rustad ollu i landinu thar a medal skolakerfinu var eina leidin fyrir hann ad laera eh ad ganga i klaustur. Hann er buinn ad vera munkur i 12 ar og var ad laera undir enskuprof en hann dreymir um ad flytja til annarra landa, helst til Singapore, en til thess tharf hann ad laera fleiri tungumal. Thad var skemmtilegt ad spjalla vid thennan strak en buddamunkarnir setja sterkan svip a mannlifid herna i Kambodiu i raudu og gulu kuflunum sinum. Nu jaeja lokastopp dagsins var svo konungshollin. Og thvilkur iburdur sem thar var, allt var gulli slegid og inni i hofum og odru var allt i gulli og gersemum. Fallegir gardar og pagodur. Alveg agaetur endir og svolitid erfidri yfirferd um ljota hluti i sogu Kambodiu. En mer finnst samt alltaf svolitid dapurlegt ad horfa upp a ofurskreyttar konungshallir i fataekum londum.
Nu er eg komin til Siem Reap og akkurat nuna sit eg vid tolvuna i gistihusinu og vid hlidina a gistihusinu er brudkaup med tilheyrandi tonlistarflutningi. Verdur ahugavert ad vita hversu lengi their halda afram......laet thetta duga, held afram med ferdasoguna sidar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.1.2008 | 15:26
Komin til Kambodiu
Vietnam var kvatt med soknudi. Eg er buin ad eyda 10 dogum thar og nidurstadan min er ad thetta er frabaert land. Sidustu dogunum eyddum vid i Ho Chi Minh City eda Saigon sem mer personulega finnst mun meira spennandi nafn. Saigon hefur fyrir mer alltaf verid sveipad aevintyraljoma thratt fyrir allt. Eg eyddi mestum tima i ad njota stemmingarinnar i borginni. Gotulifid er alveg yndislegt og mig langadi helst bara ad taka endalausar myndir af folkinu thvi thad eydir staerstum hluta lifsins fyrir utan veggi heimilisins, eiginlega bara ut a gotu. Myndefnid er thvi alveg othrjotandi. Thad eru mjog margir veitingastadir eiginlega bara a gangstettunum og folk situr uti, bordar, spjallar og nytur lifisins og krakkarnir leika ser i kring. Eg notadi taekifaerid og dekradi lika adeins vid mig og for i hand-og fotsnyrtingu og i nudd a eightis hargreidslustofu sem eg rakst a a roltinu minu. Vedrid lek vid okkur og var oskop ljuft ad rolta um i taeplega 30 stiga hita og kaela sig reglulega nidur med nykreistum avaxtasofum.
En i dag lentum vid i hofudborg Kambodiu, Phnom Penh, og verdum her thangad til a midvikudag. A morgun forum vid i skodunarferd um borgina og eg verd ad vidurkenna ad eg hlakka ekkert of mikid til. Thetta verdur erfidur dagur thvi vid munum skoda menjarnar eftir hina hrikalegu Khmer Rouge med Pol Pot i fararbroddi. Medal annars munum vid fara i fangelsid sem notad var til ad pynta folk og haegt er ad sja herbergin sem their notudu og taeki og tol asamt myndum af pyntingunum. Sidan forum vid ad the Killing Fields thar sem flestir af 17.000 fongum fangelsins voru teknir af lifi. Eg er ad lesa bok um Pol Pot thar sem farid er yfir feril hans og reynt ad svara spurningum um hver thessi madur var og hvernig hann for ad thvi ad verda thessi ohugnanlegi hardstjori. Ekki nog med thad heldur gat eg ekki annad en keypt 3 baekur um Kambodiu og thessa hrikalegu tima af gotukrokkum sem voru ad selja ljosritadar baekur. Madur verdur nu ad lata eh af hendi rakna herna en madur finnur strax mikinn mun a hversu fataek Kambodia er midad vid Vietnam.
Vid erum strax bunar ad lenda i sma aevintyrum herna, thegar vid komum a gistihusid var rafmagnid farid af gotunni og allt i svarta myrkri. Vid fengum kerti inn med okkur i herbergid og thegar vid hofdum komid okkur makindalega fyrir vid kertaljosid tokum vid eftir gati a veggnum milli rumana okkar og thar skreid ut eh huggulega padda sem eg bad vinsamlegast um ad fara inn i holuna sina aftur sem og hun gerdi. Um leid og hun hvarf i gatid sitt notadi eg taekifaerid og plastradi yfir gatid. Hef kannski ekki alveg humor fyrir frekari heimsoknum thessarar fjolskyldu. Sidan reyndar rakst eg a litla edlu fyrir utan dyrnar hja okkur, voda saet, vaeri samt ekki til i ad vakna med hana i harinu a morgun.
Eftir ad vid yfirgefum Phnom Penh naestkomandi midvikudag forum vid til borgar sem heitir Siem Reap. Vid siglum med bati sem tekur um 6 klst. Thar aetlum vid ad nota timann og skoda hofin i Angokor. Thetta er vist eitt thad otrulegasta sem um getur i Sudaustur Asiu. Thetta eru hof sem byggd voru a nokkurra alda timabili og eiga ad vera algjorlega mognud. Eg segi ykkur betur af theim eftir ad eg hef skodad thau. Jaeja eg laet thetta duga i bili. Vona ad thid hafid thad sem best!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.1.2008 | 07:28
Hanoi, Halong Bay, Hue og HCHC
Jaeja thad er nu vist kominn timi til ad lata heyra i ser. Ferdalagid gengur vel. Vid eyddum 2 dogum i Hanoi og vorum ad turistast allan timann. Thad er rosa gaman ad rolta bara um gamla baeinn enda er brjalad lif thar og madur ma hafa sig allan vid ad halda lifi i umferdinni thar. Theyr eru ekkert a vila fyrir ser og keyra afram eins og brjaladingar. Fyrir utan ad rolta um baeinn og sitja a kaffihusum og sotra rotsterkt kaffi eda ferska avaxtasafa forum vid og heimsottum grafhysi Ho Chi Minh og saum hann "in the flesh" eins og einn ferdahandbokin ordadi thad svo skemmtilega. Einnig skodudum vid safn tileinkad thessari sjalfstaedishetju Vietnama og kom thad a ovart, mjog kul safn fannst mer. Nu vid forum svo i 2ja daga ferd til Halong Bay. Thad var alveg yndislegt, sigldum a bati i 2 daga a milli thessara kletta eda fjalla, alveg otrulega fallegt og gott ad komast ut i natturuna. Vid skodudum risa storann helli og hofdum thad bara mjog gott i skemmtilegum felagsskap i folkinu sem var med okkur a batnum. Ferdin til baka var mognud, thad lysir thvi kannski best thegar einn ferdafelaginn sagdi ad nu vissum vid hvernig farthegunum i myndinni Speed leid.....
Um leid og vid komum til baka thurftum vid ad drifa okkur i naeturrutu til borgar i mid Vietnam sem heitir Hue. 14 tima ferdalag i huggulegri koju. Hue er mjog naes borg en vid fengum ekki besta vedrid heldur rok og rigningu. En hva bara hressandi, serstaklega daginn eftir sem vid eyddum i ferd a svaedi thar sem stor hluti Vietnam stridsins var had. Svaedi sem skilur sudur og nordur Vietnam. Thad var mjog ahugavert ad skoda thetta allt saman, medal annars skodudum vid nedanjardargong sem 82 fjolskyldur bjuggu i fra 1966-1972. I gongunum var t.d. faedingarstofa thar sem tekid var a moti 17 bornum a thessum tima. Thad baetti enn a dramatikina hja mer ad eg er ad lesa bok eftir vietnamska konu sem er ad lysa thessum timum en hun var unglingur i stridinu og bjo akkurat tharna i mid Vietnam svo eg er buin ad lifa mig algjorlega inn i thessa tima.
I dag erum vid svo komnar til Ho Chi Minh City eda Saigon. Her er um 29 stiga hiti og ljufasta vedur. Virkar skemmtileg borg en eg skrifa nu meira um hana sidar. Sem sagt hef thad afskaplega gott og nyt thess ad upplifa alla thessa hluti. Thangad til naest vona eg ad thid hafid thad gott. Aetla ekkert ad raeda politikina heima......amk ekki nuna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.1.2008 | 01:56
Komin til Hanoi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.1.2008 | 05:30
Back in Beijing
Ferðin til Peking gekk vel en var frekar tíðindalítil. Borgin tók vel á móti mér, fallegt veður, sólskin og heiðskír himinn en nokkuð mikið frost. Ekki var það nú verra að fá kvenleigubílstjóra sem er eins og ég hef áður sagt í uppáhaldi hjá mér og má segia að loksins hafi ég fengið eitthvað sem bætti fyrir leigubílstjórann sem svindlaði svo svakalega á mér er ég tók leigubíl frá flugvellinum þegar ég kom hingað í haust. Einhvern veginn kom það mér heldur ekki á óvart að enn eru verslanir og veitingastaðir með glaðlega glimmer jólasveina límda í alla glugga, er alveg í takt við þetta jólastúss hér í Kína......Íbúðin mín leit óskaplega vel út en Ryan hafði tekið sig til og tekið til hátt og lágt og var frekar stoltur af dagsverkinu en Ryan er að passa íbúðina mína meðan ég er á þessu flakki öllu saman. Það virðist eh hafa ruglast hjá mér svefnmynstrið út af tímamismuninum. Ég lagði mig í gærdag vaknaði um kvöldið og skellti mér með Ryan á ódýra pizzastaðinn hérna handan við hornið. Við sátum þar að sumbli fram eftir nóttu, vorum að plana næstu önn sem við erum algjörlega sammála um að hafa afskaplega líflega og skemmtilega. Ætlaði svo að fara að sofa um miðja nótt en gat engan veginn sofnað og endaði á þvi að horfa á fullt af þáttum af Næturvaktinni. Þættirnir eru bara hrein snilld og skemmti ég mér konunglega. Eftir glápið fór ég bara að stússast enda í nokkru að snúast áður en haldið er í bakpokaferðalagið mikla. Er búin að fjárfesta í þessum fína bakpoka, 80 lítra og er að mestu leyti orðin ferðabúin. Ferðalagið hefst svo í fyrramálið eldsnemma og mun standa til 17. febrúar næstkomandi. Ég mun láta vita af mér hérna á síðunni þegar ég kemst í netsamband en tölvan verður skilin eftir heima. Sem sagt vonandi fullt að ævintýrum sem bíða amk er ég farin að hlakka mikið til að heimsækja Víetnam, Laos, Kambódíu, Tæland og HongKong.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.1.2008 | 16:19
Skemmtisaga úr hversdagsleikanum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.1.2008 | 15:54
Ritgerðarskrif og annað skemmtilegt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.1.2008 | 15:34
Gleðilegt nýtt ár, árið 2008!
Það er ekki laust við það að við þessi árlegu tímamót að maður snúi sér aðeins við og horfi til baka á árið sem er liðið og jafnvel enn lengra til baka. Það eru eins og gengur góðir og slæmir hlutir sem hafa gerst. Sumt getur maður notað til að læra af og passa sig á því að lenda ekki í sama farinu aftur. Aðrir hlutir hafa verið manni góðir og þá er auðvitað að halda áfram á þeirri braut. Mér fannst það alveg tilheyra að fara með góðum vinum og fagna almennilega árinu sem gengið er í garð. Ég trúi því að ef maður tekur vel á móti þá mun þetta verða gott og gjöfult ár. Til þess að fagna skellti ég mér á nýársfagnað á Hótel Loftleiðum og það var bara svona ótrúlega gaman. Það var glæsileg umgjörð og mjög skemmtilegt ball sem beið okkar. Bara nokkur slatti af fólki sem maður hitti og ekki nóg með það heldur gat ég aldeilis farið að sinna áramótaheitinu sem er að sinna góðum vinum mínum og hitta nýtt og skemmtilegt fólk. Ég er ekki frá því að það séu kannski bara nokkur spennandi tækifæri sem ég fékk þarna í gegnum fólk sem ég hitti. Svo ég get ekki kvartað árið virðist fara ansi vel af stað!!! Hápunktur kvöldsins var þegar Margrét vinkona steig á svið og sýndi hvað í henni býr mikil stjarna og spádómur kvöldsins var sá að hún ætti eftir að sigra heiminn. Ég hef svo sem aldrei verið í neinum vafa um það ;-)
Annars vil ég bara nota tækifærið og óska ykkur öllum góðs og gæfuríks árs!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.12.2007 | 16:26
Ljúfir dagar á heimaslóðum
Þá er maður búinn að dvelja heima um tíma og hafa það mjög svo indælt um jólin. Heimferðin frá Peking var nú ansi merkileg fyrir margar sakir. Það sem setti á hana sterkan svip voru seinkanir á öllum þremur flugunum sem ég tók til þess að komast heim. Allt gekk þetta þó að lokum og ég var komin heim einum og hálfum sólarhring eftir að ég hóf ferðalagið í Peking. Fríið hérna heima hefur verið mjög svo ljúft og hef ég eytt tíma mínum með fjölskyldu og vinum. Ég er líka búin að kíkja út á lífið og verður að segjast að ekki hafa nú hlutirnir breyst mjög mikið. En þrátt fyrir það er maður búinn að fjárfesta í miða á nýársfagnað og hlakka ég svoldið til enda orðið ansi langt síðan að ég fór síðast á slíkt ball. Verður spennandi að sjá hvernig þetta verður. Annars er nú fríinu að ljúka því að ég stakk af frá Peking án þess að vera búin að klára allar ritgerðirnar mínar svo að nú þarf ég að setja í skriftargírinn næstu dagana og klára önnina áður en ég fer svo í almennilegt frí en það verður víst ekki á Íslandi í þetta skipti heldur í Suðaustur Asíu. Ég ætla svo að leyfa mér að skella inn korti sem bekkjarfélagi minn gerði og sendi okkur í bekknum. Algjört snilldarverk.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)